Stjórnarnefnd fundar í aðdraganda leiðtogafundar

Birgir Ármansson forseti Alþingis mun opna fundinn. Hér má sjá …
Birgir Ármansson forseti Alþingis mun opna fundinn. Hér má sjá hann á ráðstefnu þingforseta í Apríl. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins kemur saman hér á landi í aðdraganda leiðtogafundar til þess að ræða hlutverk Evrópuráðs. Fundurinn verður haldinn á mánudaginn á Iceland Parliament Hotel.

Í stjórnarnefnd eru alls um 60 þingmenn frá 46 aðildarríkjum Evrópuráðsins. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins skipa Bjarni Jónsson formaður, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir varaformaður og Birgir Þórarinsson.

Birgir Ármannsson forseti Alþingis opnar fundinn og Ruslan Stefantjuk forseti Úkraínuþings mun flytja netávarp. Birgir og Stefantjuk hittust einnig á ráðstefnu evr­ópskra þing­for­seta í Prag sem haldin var í apríl.

Í kjölfar ávarps Stefantjuks verður umræða um Evrópuráðið sem lykilaðila í stofnanastrúktúr Evrópu. Þar mun Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra taka til máls, auk Tiny Kox forseta Evrópuráðsþingsins, Sylvie Bermann, fyrrverandi sendiherra Frakklands í Peking, London og Moskvu og Alice Bergholtz, varaformaður ráðgjafaráðs Evrópuráðsins um æskulýðsmál.

Í síðari umræðu fundarins er sjónum beint að Evrópuráðinu sem brautryðjanda mannréttindaverndar og nýrri kynslóð réttinda en meðal þátttakenda verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Tiny Kox, Nathalie Smuha, sérfræðingur í gervigreind, og Tinna Hallgrímsdóttir, nýr loftslags- og sjálfbærnifræðingur hjá Seðlabanka Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert