Enginn hlaut fyrsta vinning í EuroJackpot í kvöld, en hann hefði orðið rúmir þrír milljarðar króna.
Annar vinningur var 48.850.350 krónur og voru fimm lottóspilarar með heppnina með sér í liði. Einn þeirra keypti miða sinn í Noregi, tveir miðar voru keyptir í Þýskalandi og aðrir tveir í Danmörku.
Þrír fengu þriðja vinning sem var í þetta skiptið 45.915.540 króna. Einn miði var keyptur í Tékklandi en hinir tveir í Finnlandi.
Þrír Íslendingar nældu sér í annan vinning í Jókernum sem var 100.000 krónur.