Varnargarður hlaðinn við Vík í Mýrdal

Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki eigi síðar en …
Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki eigi síðar en í lok ágúst. mbl.is/Jónas Erlendsson

Vinna er hafin við byggingu sjóvarnargarðs við hesthús í Vík í Mýrdal. Um er að ræða 150 metra langan varnargarð í fjörunni til að verja svæðið fyrir sandburði.

Verkið var boðið út í vetur. Fyrirtækið VBF Mjölnir ehf. bauð lægst í verkið, rúmar 42 milljónir kr., og var samið við það í kjölfarið. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki eigi síðar en í lok ágúst.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert