Flugvél Play sem lagði af stað til Gautaborgar í morgun var snúið við þegar um korter var liðið frá flugtaki og lenti vélin aftur á Keflavíkurflugvelli.
Birgir Olgeirsson, upplýsingafulltrúi Play, segir að um lítilsháttar atvik hafi verið um að ræða sem þurfti að kanna betur. Flugvélinni hafi verið snúið við sem hafi verið varúðarráðstöfun.
Nánari athugun leiddi í ljós að allt væri í góðu standi og fer flugvélin í loftið að nýju á eftir.