„Ég á svo sem ekki von á að staðan breytist en ég vona að það sé kominn einhver samningsvilji í SNS,“ segir Sonja Ýr Þórbergsdóttir, formaður BSRB.
Ríkissáttasemjari boðaði fyrr í vikunni samninganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) á fund sem verður haldinn í dag klukkan 13. BSRB vísaði kjaradeilum ellefu aðildarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga(SNS) til embættis ríkissáttasemjara fyrir rúmum mánuði.
„Við höfum engar fregnir fengið sem benda til þess að það sé einhver breytt afstaða hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga“ segir hún og bætir við að hún búist ekki við miklu frá fundinum en vonar að „það sé kominn einhver samningstónn“ í SNS.
Verkfallsaðgerðir hefjast á mánudaginn, að öllu óbreyttu. Starfsmenn leikskóla í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ í verkfall ef af verður auk starfsfólks í grunnskólum Kópavogs, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar.
Deilan snýr að launamismuni félagsmanna BSRB og Starfsgreinasambands Íslands, en BSRB hefur krafist launaleiðréttingu fyrir sitt fólk, þar sem félagsmenn SNS hlutu launahækkun 1. janúar, en BSRB ekki fyrr en 1. apríl.