Björn Sigurðsson bóndi í Úthlíð í Biskupstungum lést á Hjúkrunarheimilinu Móbergi 11. maí, 87 ára að aldri.
Björn fæddist 6. júlí 1935 í Úthlíð og ólst þar upp. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Tómas Jónsson bóndi í Úthlíð og Jónína Þorbjörg Gísladóttir húsfreyja. Eftir hefðbundna barnaskólagöngu stundaði hann nám við Íþróttaskólann í Haukadal.
Björn hóf ungur hefðbundinn búskap í Úthlíð með foreldrum sínum og síðar Jóni bróður sínum en stundaði um skeið vöruflutningaakstur samhliða búskapnum. Um 1980 hófst uppbygging orlofshúsa á jörðinni. Var það fyrsti vísir að ferðaþjónustu sem síðan hefur vaxið og tekið að mestu leyti við af hefðbundnum búskap. Tilkoma hitaveitu Hlíðamanna markaði tímamót í uppbyggingu ferðaþjónustunnar en Björn var forgöngumaður við þá framkvæmd. Björn var valinn í fyrstu stjórn Ferðaþjónustu bænda og var formaður í þrjú ár.
Björn tók virkan þátt í félagsmálum í sinni sveit og á landsvísu. Hann var formaður Ungmennafélags Biskupstungna, Búnaðarfélags Biskupstungna og Lionsklúbbsins Geysis. Hann sat í stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins og fjölda annarra félaga og gegndi trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjördæminu.
Björn hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum. Hann fékk Landbúnaðarverðlaunin árið 2007 og var heiðursfélagi í Ungmennafélagi Biskupstungna og Búnaðarfélagi Biskupstungna. Þá var hann heiðursfélagi í Golfklúbbi Úthlíðar og bar gullmerki Golfsambands Íslands. Árið 2016 var Björn sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir félagsmálastörf og uppbyggingu ferðaþjónustu.
Björn reisti kirkju til minningar um konu sína, sem var vígð 9. júlí 2006. Úthlíðarkirkja er bændakirkja og var Björn frá þeim tíma kirkjubóndi.
Eiginkona Björns var Ágústa Margrét Ólafsdóttir, hún lést 2004. Börn þeirra eru Ólafur, Sigríður, Hjördís og Jónína Birna. Björn átti 12 barnabörn og 6 barnabarnabörn.