Dýpkandi lægð suður af landinu

Vindaspá fyrir klukkan tvö í nótt.
Vindaspá fyrir klukkan tvö í nótt. Kort/Veðurstofa Íslands

Í morgunsárið var dýpkandi lægð stödd suður af landinu sem fer allhratt til norðurs. 

Í dag gengur því í austan og norðaustan 5-13 m/s og fer að rigna, fyrst um landið sunnanvert. Hiti verður á bilinu 6 til 12 stig. Miðja lægðarinnar á síðan að vera yfir austanverðu landinu seint í kvöld og þá snýst vindur til vestlægari áttar, það bætir í og kólnar, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Á morgun er spáð norðvestan og vestan 8-13 m/s, en 13-18 m/s um landið norðaustanvert. Víða má búast við rigningu eða slyddu, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Snjókoma á heiðum á norðanverðu landinu. Hiti verður frá 1 stigi í innsveitum fyrir norðan, upp í 9 stig syðst. Kólnar meira annað kvöld.

Hret er í vændum á morgun og ferðalangar ættu að gefa því gaum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert