Einn fluttur með þyrlu eftir bílslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan einstakling.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan einstakling. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna bílslyss við Klettsháls á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar í samtali við mbl.is.

Vísir greinir fyrst frá. 

Beiðni lögreglunnar um aðstoð þyrlunnar barst laust eftir klukkan ellefu í dag. Þyrlan var þá á leið í loftið á æfingu þegar útkallið barst.

Hætt var við æfinguna og var þyrlan lent við Landspítalann í Fossvogi laust eftir klukkan 13.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert