Hugmyndir sóknarnefndar Langholtskirkju um byggingu íbúðarhúss á bílastæði við kirkjuna ná ekki fram að ganga. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið neikvætt í erindi sóknarnefnfndarinnar.
Skipulagsfulltrúinn segir í umsögn að ekki séu uppi áform hjá Reykjavíkurborg um þéttingu byggðar á þessu svæði enn sem komið er og nauðsynlegt sé að fá heildarsýn á uppbyggingu svæðisins áður en lengra er haldið.
„Lóðinni var úthlutað án greiðslu til Langholtskirkju á sínum tíma. Ef lóðarhafi hefur ekki þörf fyrir alla lóðina getur hann skilað þessum hluta hennar til Reykjavíkurborgar,“ segir í umsögninni, sem tekin var fyrir á síðasta fundi.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í síðasta mánuði sendu Kanon arkitektar fyrir hönd sóknarnefndarinnar borginni fyrirspurn um hvort leyft verði að taka hluta lóðar Langholtskirkju við Sólheima undir íbúðabyggingu. Hugmyndin var sú að íbúðarhúsið risi á bílastaðinu fyrir aftan Langholtskirkju.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag