Frost gæti sett strik í reikninginn við malbikunarvinnu

„Það spáir sjö stiga frosti og snjókomu á svæðinu. En hingað til hefur verkið gengið vel og við erum á undan áætlun,“ segir Vilhjálmur Matthíasson framkvæmdastjóri Malbiksstöðvarinnar.

Fyrirtækið vinnur nú að því að malbika í Þrengslunum og voru verklok áætluð í næstu viku. Veðrið gæti sett þar strik í reikninginn.

Á milli 30 og 40 manns koma að verkinu að meðaltali að sögn Matthíasar og annar eins fjöldi af tækjum er á staðnum. Um sjö þúsund tonn af malbiki fara á þann fimm og hálfs kílómetra kafla vegarins sem nú er endurgerður. Ný tæki gera fyrirtækinu meðal annars kleift að malbika tvær akreinar í einu. 

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert