Hlupu uppi meintan fíkniefnasala í Kópavogi

Í dagbók lögreglu segir að tilkynning hafi borist um mögulega …
Í dagbók lögreglu segir að tilkynning hafi borist um mögulega fíkniefnasölu í Kópavogi. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu hlupu uppi meintan fíkniefnasala í gær sem hafði tekið til fótanna þegar lögreglu bar að garði.

Í dagbók lögreglu segir að tilkynning hafi borist um mögulega fíkniefnasölu í Kópavogi ásamt lýsingu af honum grunaða. Lögregla fór á vettvang til að kanna málið og staðsetur meintan fíkniefnasala.

Þegar hann varð var við lögreglu hleypur hann á brott og reyndi að stinga lögregluna af. Lögreglumenn hlupu uppi manninn og handtóku hann vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna. Hinn grunaði var vistaður í fangaklefa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert