Hópurinn enn týndur

Björgunarsveitir leita fimma manna hóps á Vatnajökli, en þreifandi bylur …
Björgunarsveitir leita fimma manna hóps á Vatnajökli, en þreifandi bylur er á leitarsvæðinu. Mynd úr safni. Landsbjörg/Óðinn Sigurðsson

Skíðahópurinn sem björgunaraðilar leita á Grímsfjalli í Vatnajökli er enn ekki fundinn. Um ræðir fimm spænskumælandi einstaklinga, en ein kona í hópnum er slösuð eftir að hún féll og fékk farangurssleða í höfuðið. 

Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, reyndist staðsetningin sem hópurinn gaf björgunaraðilum ekki rétt, en þar að auki eru tungumálaörðuleikar sem vefjast fyrir í leitinni. 

Jón Þór segir björgunaraðila hafa náð sambandi við hópinn fyrir um klukkutíma og að þau séu ágætlega á sig komin miðað við aðstæður, staðsetningarnar sem fáist frá þeim séu hins vegar villandi.  

Fjöldi björgunaraðila er á staðnum en björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu og af Austfjörðum voru kallaðar út til að leggja björgunaraðilum á staðnum lið. Jón Þór segir skyggni enn mjög slæmt og að leitin gangi því hægar, en örugglega fyrir sig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert