Læknir og hjúkrunarfræðingur komu að slysinu

Flogið var með ökumanninn með þyrlunni á sjúkrahús í Reykjavík.
Flogið var með ökumanninn með þyrlunni á sjúkrahús í Reykjavík. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Vegfarendur sem komu fyrstir að umferðarslysi sem varð á veginum yfir Klettsháls í Reykhólasveit á ellefta tímanum í morgun voru hjúkrunarfræðingur og læknir. 

Í Facebook-færslu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að fólksbifreið fór út af veginum og valt eina eða fleiri veltur. Ökumaður var einn í bifreiðinni og var fastur í bílflakinu. 

Læknirinn og hjúkrunarfræðingurinn hlúðu að viðkomandi í bifreiðinni áður en björgunarsveitir af svæðinu, sjúkrabifreið og tækjabíll frá Patreksfirði ásamt lögreglu komu á vettvang. 

Þá var kallað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. 

Líðan ökumannsins stöðug eftir atvikum

„Þegar ökumaður hafði verið losaður úr bílflakinu og fékk viðeigandi aðhlynningu var honum flogið með þyrlunni á sjúkrahús í Reykjavík. Líðan hans mun vera, eftir atvikum, stöðug,“ segir í færslunni. 

Lögreglan á Vestfjörðum þakkar þeim vegfarendum sem komu á vettvang og hlúðu að hinum slasaða og viðbragðsaðilum fyrir vel unnið verk.

Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og rannsóknarnefndar samgönguslysa.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert