Björgunarfólk leitar nú konunnar sem lenti í skíðaslysi á Vatnajökli. Konan og hópurinn sem hún var með voru ekki þar sem áætluð staðsetning þeirra var, og eru sleðahópar nú að leita svæðið þar í kring.
Hópur björgunarfólks á vélsleðum sem fór upp Skálafellsjökul er nú komið að Grímsfjalli og leitar hópsins. Skyggni þar er afar lélegt og skilyrði erfið.
Hópurinn sendi út hjálparbeiðni um þrjúleytið í dag eftir að konan féll á gönguskíðum og fékk farangursleða sem hún dró á eftir sér í höfuðið.
Ástand konunnar, þegar síðast var samband við hópinn, var stöðugt, en ljóst er að hún komist ekki niður sjálf, heldur þurfi að flytja hana niður af jökli í bíl eða snjóbíl.
Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar var ljóst frá upphafi að sækja þyrfti á jökul úr tveimur áttum og var útkallið strax stækkað, það nær nú til björgunarsveita frá Hvolsvelli og austur á Höfn í Hornafirði.
Hópur að austan hélt upp Skálafellsjökul og lagði á jökul á vélsleðum, breyttum bílum og snjóbíl. Að vestan hélt björgunarfólk inn að Jökulheimum til að leggja þaðan á snjóbíl og breyttum bílum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en skyggni er afar lélegt og hefur því ekki tekist að lenda henni.