Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur breytt horfum um lánshæfi ríkissjóðs úr stöðugum í jákvæðar og staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands.
Sterkur yfirstandandi efnahagsbati í kjölfar heimsfaraldursins og áframhaldandi afkomubati hins opinbera á næstu árum mun styrkja stöðu opinberra fjármála hér á landi umfram fyrri væntingar, samkvæmt matsfyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Horfunum gæti verið breytt í stöðugar á ný ef ytri staða þjóðarbúsins myndi versna markvert í samanburði við væntingar. Samhliða því yrði hagsvöxtu líklega minni en gert var ráð fyrir. Þetta gæti m.a. gerst vegna minni efnahagsumsvifa í helstu viðskiptalöndum Íslands í Evrópu eða breytinga í alþjóðlegum ferðavenjum.
Telur S&P að sterk innlend eftirspurn og áframhaldandi bati í ferðaþjónustu muni leiða til 3,3% hagvaxtar á yfirstandandi ári og að meðaltali 2,4% hagvaxtar á árunum 2024 til 2026.
Ísland hefur tekist á við þrýsting á ytri áskoranir þjóðarbúsins með skilvirkum hætti og sjálfstæði landsins í orkumálum hefur veitt vörn gegn áhrifum innrásar Rússa í Úkraínu. S&P hefur því endurskoðað horfur fyrir lánshæfiseinkunnirnar úr stöðugum í jákvæðar.
„Jákvæðar horfur endurspegla það mat S&P að horfur í opinberum fjármálum eða geta landsins til að mæta ytri áföllum muni halda áfram að batna, mögulega umfram væntingar S&P, á næstu 24 mánuðum.
S&P gæti hækkað lánshæfiseinkunnina ef bati opinberra fjármála verður umfram væntingar, ýmist vegna minni halla og lægri hreinna skulda eða vegna minni ríkisábyrgða. Einkunnirnar gætu einnig verið hækkaðar ef S&P teldi að geta landsins til þess að standa af sér ytri áföll hefði batnað. Það gæti gerst vegna meiri útflutningsvaxtar og aukinni fjölbreytni útflutnings og þar með lægri hreinni erlendra skulda og minni sveiflna í viðskiptakjörum,“ segir í tilkynningunni.