Það var í mörg horn að líta hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt.
Í miðbænum var óskað eftir aðstoð lögreglu þar sem einstaklingi var haldið niðri. Sá var undir áhrifum áfengis og sagður ógnandi. Var hann kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar.
Tilkynnt var um slagsmál í miðbænum, lögregla fór á vettvang.
Þá var tilkynnt um þjófnað á hóteli í hverfi 105 þar sem sást til fólk ganga að kæli og taka drykki án þess að greiða fyrir þá. Verknaðurinn náðist á upptökur öryggismyndavéla.
Í Kópavoginum missti ökumaður stjórn á bifreið í beygju með þeim afleiðingum að girðing skemmdist. Bifreiðin var óökufær og dregin af vettvangi. Ekki var fjallað um slys á fólki í kerfum lögreglu.
Þá var tilkynnt um yfirstandandi innbrot í Kópavoginum. Lögregla fór á vettvang og var þá þjófurinn farinn. Málið er í rannsókn.
Í Mosfellsbæ var einnig tilkynnt um slagsmál. Tvær áhafnir voru sendar á staðinn til að skoða málið.