Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær óljós tilkynning um slagsmál í hverfi 112 þar sem maður var sagður ganga um vettvang og veitast að fólki með öxi.
Samkvæmt dagbók lögreglu könnuðust vitni á vettvangi ekki við neina öxi en tóku eftir einstaklingi sem féll utan í bifreið sem ók í burtu af vettvangi þegar lögregla kom.
Öxinni var ekki beitt gegn neinum á vettvangi.
Lögregla stöðvaði akstur bifreiðarinnar stuttu síðar og í henni fannst öxi. Tveir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa á meðan lögreglan rannsakar málið.