Skjólgarðar rísi á fleiri stöðum

Dæmi um slík hús í borginni eru leikskólar sem settir …
Dæmi um slík hús í borginni eru leikskólar sem settir hafa verið upp og kallast Ævintýraborgir. mbl.is/sisi

Undirbúningur að byggingu svokallaðra skjólgarða fyrir flóttafólk í Reykjavík er á frumstigi.

Eins og fram kom í frétt hér í blaðinu í vikunni sendi félags- og vinnumarkaðsráðuneytið erindi til Reykjavíkurborgar í síðasta mánuði varðandi skjólgarðana og samþykkti borgarráð að ganga til viðræðna við ráðuneytið. Viðræður eru hafnar og byrjað að kortleggja mögulega staði í borginni, upplýsir Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, talsmaður umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Sigríði Víðis Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa ráðuneytsins, hefur sams konar erindi ekki verið sent á önnur sveitarfélög, en slíkt sé í bígerð. Ekki liggur fyrir hvaða sveitarfélög verður haft samband við.

Fram kemur í bréfi ráðuneytisins til Reykjavíkurborgar frá 12. apríl sl., sem ritað er fyrir hönd Guðmundar Inga Guðbrandssonar ráðherra, að í kjölfar aukins fjölda flóttafólks frá Úkraínu og öðrum ríkjum til landsins óski ráðherra eftir að hafinn verði undirbúningur að því að reisa svokallaða skjólgarða (einingabyggðir) fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd líkt og önnur ríki Evrópu hafa gert.

Slíkar einingabyggðir fyrir flóttafólk í útlöndum eru oft nefndar flóttamannabúðir en það orð kemur hvergi fyrir í bréfi ráðuneytisins né í samþykkt Reykjavíkurborgar. „Það kemur ekki til greina að koma upp flóttamannabúðum á Íslandi og þingflokkur Vinstri grænna mundi aldrei samþykkja slíkt.“ Þetta sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þáverandi þingflokksformaður Vinstri grænna, á Alþingi 6. október 2020, samkvæmt frétt á ruv.is.

Hægt er að nálgast fréttina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert