Flýta þurfti rástíma Mýrdalshlaupsins um þrjár klukkustundir vegna slagviðris. Ákvörðun var tekin um sólarhring fyrr og var mikið kapp lagt á að skilaboðin kæmust til keppenda í tæka tíð.
Á fimmta hundrað voru skráðir í hlaupið sem hófst í morgun og að sögn skipuleggjanda urðu þó nokkrir þátttakendur blautir og kaldir en bróðurpartur þeirra náði þó að klára í fínu veðri.
Óhætt er að segja að veðurguðirnir hafi ekki verið skipuleggjendum Mýrdalshlaupsins hliðhollir í dag. Mikilli rigningu var spáð fyrir hlaupið sem kemur sér illa þegar halda á hlaup þar sem leiðin liggur um brattar fjallshlíðar.
Til að vera vissir um í hvað stefndi brugðu skipuleggjendur á það ráð að fá veðurfræðinginn Einar Sveinbjörnsson til að útbúa sér veðurspá fyrir svæðið. Í ljós kom að mikil rigning væri yfirvofandi og var því ákveðið að flýta rástíma um þrjár klukkustundir.
„Svo var bara fínt veður í morgun og massinn af hlaupurunum náðu að klára í ágætis veðri. Svo skellur á þetta slagveður um hádegi. Það voru vissulega nokkrir blautir hlauparar að koma í mark en við erum bara mjög ánægðir með þessa ákvörðun,“ segir Guðni Páll Pálsson, skipuleggjandi hlaupsins, í samtali við mbl.is.
„Þetta er bæði upp á upplifun hlaupara en líka upp á öryggi, þetta eru há fjöll og brött þannig að það má ekkert mikið gerast. Þannig að þegar veðrið versnar að þá má ekkert mikið gerast.“
Eins og nafnið gefur til kynna er hlaupið haldið í Mýrdalnum. Til að öruggt væri að skilaboðin um breyttan rástíma kæmust til skila var nýr tími sendur í gegnum tölvupóst, auglýst var á samfélagsmiðlum og hringt í þátttakendur.
„Við vorum með símanúmer hjá öllum í gegnum skráningarkerfið. Við settum bara upp símaver og hringdum út. Það gekk bara vel.“
Brautarmet var slegið í ár þegar að fyrsti hlauparinn kom í mark í morgun. Sá heitir Þorsteinn Roy Jóhannsson en hann kláraði 21 kílómetra hlaupið á einni klukkustund og 42 mínútur.
„Sem er alveg ómennskt að mínu viti,“ segir Guðni Páll.
Þá var Halldóra Huld Ingvarsdóttir með besta tímann kvenna megin en hún kláraði 21 kílómetrann á tveimur klukkustundum og einni mínútu.
Fremst í flokki í 10 kílómetra hlaupinu voru þau Sölvi Snær Egilsson, sem kláraði á rúmum 44 mínútum og Íris Dóra Snorradóttir, sem kláraði á rúmum 53 mínútum.
Hægt er að nálgast úrslitin hér.
Hlaupið er nú haldið í tíunda sinn en það var fyrst haldið árið 2013 en hefur síðan þá vaxið gífurlega.
„Fyrst var þetta lítið og sveitó, kannski 10-15 hlauparar skráðir en síðan 2019 bættum við við lengri vegalengd, og þá sprakk þetta alveg út. En samhliða fórum við að markaðssetja og koma þessu á kortið. Núna voru 470 þátttakendur skráðir til leiks.“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var skráður til leiks í ár en gat þó miður ekki hlaupið sökum meiðsla.
„Hann var bara meiddur, hann hafði brákað rifbein og gat ekki hlaupið. Hann kom samt til þess að veita verðlaun og var með smá ávarp.“