Þreifandi bylur á leitarsvæðinu

Hópurinn fannst ekki þar sem talið var að þau væri, …
Hópurinn fannst ekki þar sem talið var að þau væri, en fjöldi björgunarfólks leitar þeirra nú. mbl.is/Ragnar Axelsson

Þreifandi bylur er á leitarsvæðinu á Grímsfjalli í Vatnajökli, þar sem leitað er að skíðahópi. Veðurútlit er slæmt og þar sem fólkið fannst ekki þar sem talið var að það væri, hefur verið bætt verulega í bjargir.

Björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu og Austfjörðum hafa nú verið kallaðar út vegna leitarinnar til viðbótar þeim björgunarsveitum sem þegar eru farnar til leitar. 

Hóp­ur­inn sendi út hjálp­ar­beiðni um þrjú­leytið í dag eft­ir að kon­an féll á göngu­skíðum og fékk far­ang­ursleða sem hún dró á eft­ir sér í höfuðið. Ástand konunnar, þegar síðast var sam­band við hóp­inn, var stöðugt en ljóst var að það þyrfti að flytja hana niður af jökli í snjó­bíl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert