Þreifandi bylur er á leitarsvæðinu á Grímsfjalli í Vatnajökli, þar sem leitað er að skíðahópi. Veðurútlit er slæmt og þar sem fólkið fannst ekki þar sem talið var að það væri, hefur verið bætt verulega í bjargir.
Björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu og Austfjörðum hafa nú verið kallaðar út vegna leitarinnar til viðbótar þeim björgunarsveitum sem þegar eru farnar til leitar.
Hópurinn sendi út hjálparbeiðni um þrjúleytið í dag eftir að konan féll á gönguskíðum og fékk farangursleða sem hún dró á eftir sér í höfuðið. Ástand konunnar, þegar síðast var samband við hópinn, var stöðugt en ljóst var að það þyrfti að flytja hana niður af jökli í snjóbíl