Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitin á Höfn hafa verið kallaðar út til að aðstoða konu sem slasaðist á skíðum við Grímsfjall á Vatnajökli.
Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, er veður og skyggni ekki gott og því hafi hvorki þyrlan né björgunarmenn frá Höfn náð til konunnar.
Konan var í skíðaferð með hóp, en þau hafa komið henni fyrir í tjaldi á meðan þau bíða eftir björgunaraðilum.
Ekkert liggur fyrir um líðan konunnar eða alvarleika slyssins að svo stöddu.