Yfir 30 tungumál í skólunum

Íbúafjöldinn á Ásbrú nálgast fjölda íbúa á Seltjarnarnesi. Mikil uppbygging …
Íbúafjöldinn á Ásbrú nálgast fjölda íbúa á Seltjarnarnesi. Mikil uppbygging er fyrirhuguð á Ásbrú. mbl.is/Sigurður Bogi

„Nú er tæplega þriðjungur íbúa í Reykjanesbæ með erlent ríkisfang. Yfir 30 tungumál eru töluð í skólakerfinu, í bæði leik- og grunnskóla, og það er mjög krefjandi fyrir alla, ekki síst starfsfólkið náttúrlega en líka fyrir börnin sem skilja kannski minna en þau hefðu þurft að gera,“ segir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Hins vegar séu börn fljót að læra ný tungumál og séu þannig tiltölulega fljót að aðlagast en það gangi hægar hjá foreldrunum.

Íbúar Reykjanesbæjar voru tæplega 22.800 í apríl og hafði fjölgað um 9,5% milli ára. Þar af búa nú tæplega 9.900 manns í Keflavík. Hlutfall erlendra ríkisborgara tæplega þrefaldaðist frá janúar 2015 og fram í apríl 2023, eða úr 10,6% í 31,2%. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert