Ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður Blönduósmálið svokallaða á grundvelli neyðarvarnar hefur verið staðfest af embætti ríkissaksóknara. Þetta kemur fram í svari Huldu Maríu Stefánsdóttur, saksóknara hjá embættinu, við fyrirspurn mbl.is. Aðstandendur árásarmanns, sem réðst inn í hús á Blönduósi og varð konu að bana og særði eiginmann hennar alvarlega, kærðu ákvörðunina eftir að hún lá fyrir í síðasta mánuði. Rúv greindi fyrst frá niðurstöðunni.
Í ágúst í fyrra var skotárás á heimili á Blönduósi þar sem tveir létust og einn særðist alvarlega. Maður hafði komið vopnaður afsagaðri haglabyssu inn á heimilið, en útidyr hússins voru ólæstar. Var hann með sjö haglaskot meðferðis.
Hélt húsráðandi síðar á eftir manninum út úr húsinu þar sem kom til orðaskipta sem enduðu á þann veg að húsráðandi var skotinn í kvið og særðist alvarlega. Þá fór árásarmaðurinn aftur inn í húsið og skaut eiginkonu húsráðanda með þeim afleiðingum að hún lést.
Í tilkynningu frá lögreglu fyrr á árinu sagði: „Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Kom til mikilla átaka á milli sonarins og árásarmannsins en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasa. Átökin enduðu á þann veg að árásarmaðurinn lét lífið. Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst.
Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna byssumanns inni í húsinu kl. 05.27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögregla var komin á vettvang kl. 05.53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni.”