Samningar hafa náðst já Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, og Sameyki - stéttarfélag í almannaþjónustu.
Samninganefndir SFV og Sameyki skrifuðu í gær undir nýjan kjarasamning. Um er að ræða skammtímasamning með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.
Samningurinn er nú á leið í atkvæðagreiðslu hjá félagsfólki Sameykis en niðurstöður munu liggja fyrir kl. 15:00, föstudaginn 19. maí næstkomandi.