Í dag er spáð suðaustan og síðar sunnan 8-13 m/s og víða rigning í dag, en úrkomulítið norðaustantil. Vestlægari og þokusúld seinnipartinn, en hvessir suðaustanlands með skúrum seint í kvöld.
Hiti verður á bilinu 8 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að skammt suðvestur af Reykjanesi sé lægð, sem hreyfist norðaustur yfir landið í dag.
Lægðinni fylgja úrkomusvæði, sem rignir úr, einkum sunnan- og vestanlands. Vestlægari vindar með kvöldinu og víða þokuloft eða súld, en skúrir suðaustantil.
Í fyrramálið vex vindur úr suðri þegar lægðin nálgast og fer aftur að rigna, en snýst í allhvassa eða hvassa suðvestanátt og bætir í regnið síðdegis. Helst þó lengst af þurrt norðaustantil.
„Reikna má með snörpum vindhviðum norðvestantil síðdegis á morgun og eru því ökumenn hvattir til að fara varlega á þeim slóðum, einkum ef ökutækin taka á sig mikinn vind. Áfram suðvestanátt um helgina og því miður ekkert hlé á vætutíðinni. Kólnar síðan í þokkabót heldur í veðri.“