Brýnt að hann fái nauðsynlega heilbrigðisþjónustu

Magnús Aron Magnússon.
Magnús Aron Magnússon. mbl.is/Arnþór

Dómurinn í máli Magnúsar Arons Magnússonar hefur nú verið birtur. Þar er sérstaklega vakin athygli á því að þótt Magnús Aron hafi verið metinn sakhæfur, sé ekki útilokað að alvarleg veikindi geti verið í uppsiglingu hjá honum. 

Magnús var dæmur í 16 ára fangelsi í lok apríl fyrir að myrða nágranna sinn í Barðavogi. Jafnframt var honum gert að greiða 31,5 milljónir króna í miskabætur til aðstandenda þess látna. Mbl.is greindi frá niðurstöðunni á sínum tíma en þá hafði dómurinn ekki verið birtur. 

Í ljósi mögulegra veikinda hans mat dómurinn mikilvægt að við fullnustu refsingar hans verði litið til stöðu hans og þess gætt að hann fái þá heilbrigðisþjónustu sem hann þurfi á að halda.

Gekk vel í gæsluvarðhaldinu

Í dómsforsendum kemur fram að Magnús Aron eigi sér engar sérstakar málsbætur, enda hefði árás hans verið bæði ofsafengin og hrottaleg. 

Eftir umfangsmikið mat þriggja geðlækna og eins sálfræðings, sem allir skiluðu matsgerðum í málinu, var Magnús Aron metinn sakhæfur.

Þar með var álitið að refsing gæti borið árangur. Í upphafi hafði einn matsmannanna haft efasemdir að svo væri, en það réði úrslitum þegar hann sá hve vel gekk hjá Magnúsi í gæsluvarðhaldinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert