Enginn var með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og verður potturinn því fjórfaldur næsta laugardag.
Einn heppinn miðahafi hreppti bónusvinninginn og fær hann rúmar 1,2 milljónir króna fyrir vikið. Miðinn var keyptur á lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur.
Miðarnir voru keyptir í N1 Háholti, Happahúsinu Kringlunni, Lottó appinu, Lotto.is og einn var seldur í áskrift.