Katrín og Margrét á frumkvöðlalista NBC

Katrín Jakobsdóttir og Margrét Anna Einarsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir og Margrét Anna Einarsdóttir. Samsett mynd

Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Justikal, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eru á lista NBC yfir 23 áhrifamestu kvenfrumkvöðlana í stjórnmálum og viðskiptum á heimsvísu. 

Í greininni, þar sem listinn er kynntur, segir að Ísland sé dæmi um land þar sem konur séu leiðandi á ýmsum sviðum, allt frá stjórnsýslu yfir í heim viðskipta, tækni, miðlunar og jafnvel óhagnaðardrifinna samtaka.

Kvenréttindi og hugbúnaðarlausn

Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra þarf vart að kynna.

Í greininni segir að Katrín hafi stigið stórt skref í baráttunni fyrir kvenréttindum með því að beita sér fyrir því að konur og karlar nýti sér bæði fæðingarorlof, enda sé með því komið í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns þegar kemur að ráðningum. 

Margrét hefur verið töluvert í sviðsljósinu í tækniheiminum undanfarna mánuði vegna fyrirtækisins Justikal, sem hún er einn stofnenda að.

Fyrirtækið framleiðir hugbúnaðarlausn sem gerir lögmönnum og málsaðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla og fylgjast með framvindu mála sinna rafrænt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert