Tilkynnt var í gær um 41 verkefni sem hljóta styrk úr Barnamenningarsjóði Íslands, að heildarupphæð 96.8 milljón króna. Verkefnin sem hljóta styrk í ár spanna allt litróf lista og menningar, segir í rökstuðningi fagráðs.
Úthlutunin fór fram við athöfn í Skála Alþingis í gær og fluttu ávörp þær Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Auk þess var tónlistaratriði í boði Eva Jáuregui og Francisco Javier Jáuregui.
Alls bárust 105 umsóknir og nam heildarfjárhæðin sem sótt var um rúmum 374 milljónum króna. Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknir og samþykkti forsætisráðherra tillögur stjórnar Barnamenningarsjóðs um úthlutun styrkja.
Er þetta í fimmta sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum.
Í rökstuðningi fagráðsins segir að verkefnin spanni allt litróf lista og menningar og þeim sé ætlað að auka aðgengi og þátttöku allra barna í listsköpun og listflutningi. Verkefnin leitist við að gera sköpun barnanna og sýnileika verkanna jafn hátt undir höfði og sambærilegum verkum fullorðinna. Auk þess sé sannfærandi áhersla á Barnasáttmálann og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til staðar.
Þættir á borð við aðgengi og inngildingu, ásamt samspili náttúruvísinda, umhverfisverndar og listsköpunar einkenndi umsóknirnar í ár að mati fagráðsins. Eins má nefna umsóknir sem byggja á umfangsmiklu erlendu samstarfi.
Þá var í ár nokkur fjölgun umsókna um fjölbreyttar barnamenningarhátíðir, þar sem innlend verkefni af ólíkum toga eru tengd saman undir einn hatt, ýmist þematengt eða landshlutabundið.
Í starfi og reglum sjóðsins er horft til þess að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Nú er til meðferðar á Alþingi þingsályktunartillaga forsætisráðherra um eflingu barnamenningar. Þar er lagt til að starfsemi Barnamenningarsjóðs verði fest í sessi til framtíðar og komið á fót Miðstöð barnamenningar.