Maðurinn sem féll fram af björgum við Arnarstapa á fimmtudaginn og lést var íslenskur rútubílstjóri.
Hann hafði verið þar á ferðalagi með hóp erlendra ferðamanna.
Að sögn Jóns Ólasonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi, stendur rannsókn yfir á tildrögum slyssins. Mjög blautt var á slysstaðnum og svo virðist sem manninum hafi skrikað fótur.
Rætt var við erlendu ferðamennina eftir slysið, en lögreglan hefur ekki fundið nein vitni að því sem gerðist.
„Þetta er fallegur útsýnisstaður yfir höfnina og klettana í kring en ekkert skilgreindur útsýnisstaður og það er enginn stígur sem liggur þangað. Þarna eru engir innviðir eða neitt svoleiðis,“ sagði Hákon Ásgeirsson, þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðar, í samtali við mbl.is á laugardaginn.