Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Aðstoð og öryggi ehf., sem rekur Árekstur.is, segir starfsmenn sína hafa sinnt metfjölda foktjónatilfella í dag miðað við árstíma. Fjúkandi trampólín, bílhurðir og innkaupakerrur hafi valdið tjóni á fjölda bíla í dag vegna veðursins.
„Þetta hefur aldrei gerst svona, að við höfum verið að sinna svona mörgum foktjónum í maí. Þetta er tíminn sem við notum til að hlaða batteríin fyrir komandi sumar og vetur þannig að, að fá svona dag í maí er vægast sagt mjög skrítið,“ segir Kristján Ö. Kristjánsson framkvæmdastjóri Aðstoðar og öryggis ehf. í samtali við mbl.is.
Hann segir annað eins ekki hafa gerst í fjórtán ára sögu fyrirtækisins en á þriðja tug tjónatilkynninga komu á þeirra borð í dag.
„Þetta er eitthvað sem við erum að sjá í janúar febrúar, við þurftum að dusta af regngöllunum okkar. Þetta var bara eins og góður dagur í febrúar,“ segir Kristján.
Bílhurðir hafi gjarnan hafa verið að fjúka upp og valda tjónum en einnig hafi innkaupakerrur og trampólín valdið skemmdum.
„Þetta er svolítið skrítið, að lesa fréttirnar í morgun og sjá þessar viðvaranir, ég held að fólk hafi bara verið værukært, ekki að trúa þessu,“ segir Kristján en tilkynningarnar hafi farið að berast til þeirra í hrönnum eftir hádegi.
Fyrirtækið var í því að sinna foktjónum og skemmdum á bifreiðum í allan dag. Fimm bílar fyrirtækisins voru á keyrslu um allan bæ og segir Kristján það varla hafa mátt vera minna. Almennt sér fyrirtækið um að sinna fólki sem lendir í umferðaróhöppum, aðstoðar við tjónaskýrslur og fleira í þeim dúr.
Þetta fer kannski í sögubækurnar?
„Jah, vonandi. Vonandi fáum við ekki fleiri svona daga,“ segir Kristján.