„Ég held að það gerist þannig, að ég segi þær fréttir þegar það verða þær fréttir að segja,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, spurður hvort hann hafi tekið ákvörðun um hvenær Guðrún Hafsteinsdóttir taki við sem dómsmálaráðherra.
Er ný ríkisstjórn tók við í lok nóvember árið 2021 var Jón Gunnarsson settur dómsmálaráðherra til 18 mánaða og átti Guðrún, oddviti sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, síðan að taka við embættinu.
„Loforðið var 18 mánuðum frá kosningum, það er í mars,“ sagði Guðrún í Dagmálum í janúar á þessu ári.
„Þegar það verða fréttir af því máli, þá mun ég segja þær fréttir,“ segir Bjarni spurður hvort ráðherraskiptin munu gerast áður en þingstörfum lýkur í byrjun júní.
Er enginn pirringur í mönnum að skiptin hafi ekki farið fram?
„Ég veit það ekki. Það getur verið, en þetta er bara eins og þetta er,“ segir Bjarni.