Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann til 15 mánaða fangelsisvistar og ævilangrar ökuréttarsviptingar fyrir ítrekuð brot á umferðarlögum. Dómurinn féll 17. maí en var birtur á vef Héraðsdóms Reykjaness í gær.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákærði manninn 8. mars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna laugardaginn 14. janúar. Maðurinn var stöðvaður af lögreglu á Hringbraut, móts við Aðalgötu í Reykjanesbæ.
Fram kemur í dóminum að maðurinn hafi áður hlotið ítrekaða dóma fyrir umferðarlagabrot, þar á meðal fyrir akstur sviptur ökuréttindum, hraðakstur, ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Auk þess kemur fram að hann hafi einnig gerst sekur um annars konar brot, svo sem þjófnað og brot á fíkniefnalögum.
Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi.
Héraðsdómur dæmdi manninn í 15 mánaða fangelsi með hliðsjón af ítrekuðum umferðarlagabrotum og fyrri ákærum. Manninum var gert að greiða allan sakarkostnað, samtals 329.475 krónur.