Mikið hvassviðri gerði í Öræfum í morgun en samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg fuku allmargir bílar út af þjóðveginum og voru vegfarendur almennt í vandræðum.
Stíf vestanátt mældist við Kvísker en mesti vindhraði mældist þar 29 metrar á sekúndu klukkan tíu. Þá mældust vindhviður allt upp í 49 metra á sekúndu á sama tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg var sérstaklega hvasst við Fjallsárlón þar sem varla var stætt. Björgunarsveitin Kári í Öræfum og Björgunarfélag Hornafjarðar komu að aðgerðum í morgun, þar sem þjóðveginum var lokað frá Skaftafelli að vestan og Jökulsárlóni að austan meðan mesta hvassviðrið gekk yfir.
Slíkur var strekkingurinn að hluti yfirlags vegar fauk upp. Þá urðu tvær bílveltur á svæðinu þar sem meðal annars þurfti að ræsa út sjúkraflug frá Hornafirði vegna hugsanlegra innvortis blæðinga eins farþega í húsbíl.