Hlutfall hátekjuheimila hefur lækkað nokkuð í Vestmannaeyjum og á Skagaströnd á árunum 2011 til 2021. Flest hátekjuheimili á Íslandi eru þó enn á Seltjarnarnesi og þar á eftir í Garðabæ, samkvæmt manntali Hagstofunnar í ársbyrjun 2021.
Þá eru mörg lágtekjuheimili í miðborg Reykjavíkur og á Ásbrú.
Ef heimilum í landinu er skipt upp í jafna tekjufimmtunga með rúmlega 26 þúsund heimilum í hverjum fimmtungi kemur í ljós að ríflega helmingur heimila í neðsta tekjufimmtungi voru heimili með einum einstaklingi. Í efsta tekjufimmtungi voru heimili para með börn hlutfallslega flest og heimili einstæðra foreldra hlutfallslega fæst.
Í efsta tekjufimmtungi eru heimili sem eru með 889 þúsund krónur eða meira á mánuði á neyslueiningu en í neðsta tekjufimmtung falla þeir sem hafa minna en 414 þúsund krónur á mánuði. Miðgildi tekna í efsta tekjufimmtungi var 1,1 milljón króna á mánuði en miðgildi neðsta tekjufimmtungs var tæp 343 þúsund krónur á neyslueiningu, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar.
Taka skal fram að heildartekjur eru samtala atvinnutekna, fjármagnstekna, félagslegra greiðslna, lífeyrisgreiðslna og annarra tekna fyrir skatta næstu 12 mánuði fyrir viðmiðunardag manntalsins.'
Ef tekjur eru skoðaðar út frá landfræðilegri staðsetningu kemur í ljós að hlutfall heimila í neðsta tekjufimmtungi var hæst innan smásvæðis í Reykjanesbæ (42,4%) og tveggja smásvæða í miðborg Reykjavíkur.
Lægst hlutfall heimila í neðsta tekjufimmtungi var á smásvæði á Seltjarnarnesi (8,2%) og Akranesi (8,6%) en þar á eftir voru fjögur smásvæði í Garðabæ.
Hæsta hlutfall í efsta tekjufimmtungi má svo finna á Seltjarnarnesi og í Garðabæ. Lægst hlutfall heimila í efsta tekjufimmtungi var í Þingeyjarsveit og Húnaþingi vestra.
Árið 2011 voru Skagaströnd og Vestmannaeyjar í þriðja og fjórða sæti á lista yfir hlutfall heimila í efsta tekjufimmtungi eftir sveitarfélögum. Á árunum 2011 til 2021 hefur hlutfallið þar þó lækkað nokkuð eða um 8,1 prósentustig í Vestmannaeyjum, úr 30,2% í 22,1%, og um 7,7 prósentustig á Skagaströnd, úr 30,3% í 22,6%.
Hægt er að sjá nánari útlistun hér að neðan.
Full atvinnuþátttaka var á tæpum 62% heimila í landinu, þar sem allir fullorðnir, 18-67 ára, voru skráðir í vinnu samkvæmt manntalinu 2021.
Einn eða fleiri fullorðnir sem ekki voru í vinnu voru á tæplega 24% heimila.
Þá var enginn fullorðinn með vinnu á um 15% heimila.
Hlutfall einkaheimila með bíl hefur örlítið hækkað frá 2011 til 2021, fór það úr 83,5% í 84,6%.
Hlutfall heimila með tvo bíla hefur hækkað ögn meira á sama tímabili, eða úr 33% í 37%. Eru þannig rúm 62 þúsund heimili með einn bíl en 48 þúsund með tvo bíla eða fleiri.
Bíllaus heimili voru 20.150, 15,4% af heildarfjölda heimila í landinu og hafði hlutfall þeirra lækkað aðeins frá síðasta manntali þegar bíllaus heimili voru 16,5%.
Hæst hlutfall bíllausra heimila var innan smásvæða í miðborg Reykjavíkur, Hlíðum og Vesturbæ norður (35-42% heimila). Lægst hlutfall bíllausra heimila var í smásvæðum í Mosfellsbæ, Garðabæ og Vesturlandi án Akraness (3,9-4,7%).