Vegna útleysingar á Rangárvöllum varð rafmagnslaust á Akureyri og nágrenni ásamt Dalvík og nærsveitum þar. Rafmagn fór af klukkan 18:26 og var komið á aftur klukkan 18:46.
Fram kemur í tilkynningu á vef Landsnets að verið sé að skoða ástæðu útleysingarinnar.
Rafmagnsleysið hafði áhrif á leik KA og Víkings í efstu deild karla í fótbolta um stund, en rafmagnið fór af vellinum. Það er þó komið aftur og boltinn heldur áfram að rúlla.
Uppfært klukkan 19.56:
Að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets var verið að vinna í stjórnbúnaði í tengivirki Landsnets á Rangárvöllum.
„Það sló út hjá okkur, við vitum ekki nákvæmlega hvað eða hvernig, það er hlutur sem er í skoðun núna. Það var ástæðan fyrir því að rafmagnið fór af þessu svæði,“ segir Steinunn.
Ekki er búist við því að meira rafmagnsleysi verði á svæðinu í dag.