Úrgangsgler og steypumulningur verður endurnýtt við húsbyggingar, nái hugmyndir Sunnu Ólafsdóttur Wallevik, stofnanda og framkvæmdastjóra Gerosion, fram að ganga. Þetta var ein þeirra mörgu rannsókna sem hún kynnti á fundi Samáls í Hörpu í dag.
Sunna, sem jafnframt er með meistaragráðu í ólífrænni efnafræði, stendur að baki sprotafyrirtækisins Rockpore, sem er að þróa tækni þannig að gler- og steypuúrgangur verði nýttur sem fylliefni við byggingaframkvæmdir. Úrgangi er þannig skipt út fyrir möl, kemur þá að gagni og sparar urðun.
Sunna er sannarlega með mörg járn í eldinum og kemur að fleiri nýsköpunarfyrirtækjum. Helst þeirra er Gerosion, sem unnið hefur rannsóknarverkefni með Elkem á Grundartanga. Markmið verkefnisins er að nýta iðnaðarúrgang til að búa til köggla sem nýtast sem hráefni fyrir framleiðslu kísilmálms. Gangi þetta eftir er gríðarlegu magni úrgangsefna forðað frá urðun og kolefnisspor álframleiðslu minnkar til muna.
Framleiðslan er enn á nokkru frumstigi en Sunna býst við að hún geti tekið stökk á næstu árum og orðið að hugviti sem hægt verður að flytja út um allan heim.
Gerosion er að upplagi þekkingarfyrirtæki og annast ráðgjöf í efnistækni og um tæringu, bæði fyrir jarðhitaiðnaðinn og orkufrekan iðnað. Að auki sinnir Gerosion rannsóknarverkefnum sem snúast um hringrásarvirkni hvers kyns úrgangs.
Sunna segist mjög bjartsýn á gott samstarf við iðnaðinn, að hann muni tileinka sér umhverfisvænar lausnir, þegar sýnt hefur verið fram á að þær séu gerlegar.
Sunna segist hafa fengist við rannsóknir frá unga aldri, hún sé fædd inn í steypufjölskyldu, og hafa byrjað að rannsaka steypu strax 17 ára gömul. Í framhaldinu fór hún í efnaverkfræði og tók meistaragráðu í ólífrænni efnafræði. Hún vann um tíma hjá Nýsköpunarmiðstöð og röð atvika í framhaldinu varð til þess að hún, ásamt fleirum, stofnaði nýsköpunarfyrirtækið Gerosion árið 2014.
Gangi hugmyndir Sunnu eftir væri búið að leysa örlög gler- og steypuúrgangs á Íslandi og færa kirfilega inn í hringrásarhagkerfið.