Áætlaður kostnaður á viðgerðum varnarlína sauðfjársjúkdóma er 40.150.000 krónur fyrir árið 2023. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra við fyrirspurn Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins.
Kostnaðurinn er áætlaður heldur meiri en síðustu tvö ár. Kostnaður vegna viðgerða varnarlína árið 2022 var 33.199.172 krónur og árið þar á undan 38.069.395 krónur.
Árin 2019 og 2020 var kostnaðurinn hærri en áætlað er að verði á þessu ári. Árið 2019 var hann 59.174.627 krónur en ári seinna 52.789.478 krónur.
Í svari Svandísar kemur einnig fram að línubrjótar hafi verið 271 á árinu 2022. Flestir hafi verið í Hvítárlínu eða 38 brjótar.
Matvælaráðuneytið veitti Matvælastofnun (Mast) aukafjárveitingu til viðhalds á Hvammsfjarðarlínu og Tvídægrulínu.
Mast sóttist eftir auknu fé til viðhalds á varnarlínunum vegna nýlegra riðutilfella í Miðfjarðarhólfi. Þær varnarlínur sem um ræðir skilja Miðfjarðarhólf að frá öðrum hólfum, Tvídægrulína að vestan og Hvammsfjarðarlína að norðan.