Aðalmeðferð í saltdreifaramálinu svokallaða fer fram í Landsrétti í dag og á morgun. Málið varðar annars vegar innflutning amfetamínvökva í miklu magni og hins vegar kannabisræktun á sveitabænum Hjallanesi við Hellu.
Fimm menn hlutu þunga dóma í Héraðsdómi Reykjavíkur í október fyrra. Halldór Margeir Ólafsson og Ólafur Ágúst Hraundal voru dæmdir í tólf ára fangelsi. Guðlaugur Agnar Guðmundsson og Guðjón Sigurðsson hlutu tíu ára dóm. Geir Elí Bjarnason hlaut tveggja ára dóm fyrir aðild sína að málinu.
Þeir áfrýjuðu allir til Landsréttar og krefjast ýmist sýknu, vísun frá héraðsdómi eða vægari refsingar.
Geir Elí, Ólafur Ágúst, Guðlaugur Agnar og Halldór Margeir eru viðstaddir aðalmeðferðina í Landsrétti í dag.
Anna Barbara Andradóttir saksóknari sækir málið. Dómarar í málinu eru Ásgerður Ragnarsdóttir, Eggert Óskarsson og Jón Höskuldsson.
Guðlaugur Agnar, Guðjón og Halldór Margeir voru fundnir sekir fyrir að hafa staðið að innflutningi á saltdreifara hingað til lands með Norrænu frá Hollandi. Í honum voru faldir 53 lítrar af amfetamínvökva. Var brotið framið í félagi með tveimur óþekktum erlendum aðilum. Í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila fjarlægðu þeir amfetamínvökvann úr saltdreifaranum og framleiddu allt að 117,5 kg af amfetamíni í sölu og dreifingarskyni.
Guðjón, Halldór Margeir, Geir Elí og Ólafur Ágúst voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman að kannabisræktun í útihúsi í Rangárþingi ytra.