Íbúar í Skerjafirði eru óánægðir með að Reykjavíkurborg ætli ekki að gera umhverfismat vegna hins svonefnda Nýja-Skerjafjarðar.
„Borgarstjóri telur ekki að það þurfi að setja þessa 1.400 íbúða byggð í umhverfismat. Þarna á að moka upp 170.000 rúmmetrum af olíumenguðum jarðvegi,“ segir Eggert Hjartarson, formaður Prýðifélagsins Skjaldar, íbúasamtaka Skerjafjarðar. Á sama tíma eigi sex ljósamöstur við flugvöllinn að fara í umhverfismat vegna ljósmengunar og áhrifa á fuglalíf.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.