Ágúst Birgisson, lýta- og bæklunarskurðlæknir, opnaði nýverið sína eigin skurðstofu í Efstaleiti. Ágúst segir í samtali við Morgunblaðið í dag að leyfisferlið sem fylgdi opnuninni hafi verið langt og að á köflum hafi það nánast virkað handahófskennt.
Nefnir hann sem dæmi athugasemdir byggingafulltrúa, sem hafi m.a. stangast á við kröfur landlæknis.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.