Tillaga um framlengingu undanþágu á tollfrjálsum innflutningi landbúnaðarvara frá Úkraínu hefur ekki ratað á borð ríkisstjórnarinnar að sögn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og formaður Viðreisnar, spurði forsætisráðherra um stöðu málsins í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í gær. Frestur til að framlengja undanþáguna rennur út í dag en hún tók gildi sumarið 2022.
Það sé hægur vandi að framlengja þetta ákvæði þar sem það kallar á lagasetningu, segir Katrín og bætir við að ákvörðunin hafi á sínum tíma verið utanríkispólitísk fremur en ákvörðun sem laut að matvælastefnu.
Katrínu þykir rétt að framlengja þessa undanþágu en hyggst kanna stöðu málsins hjá matvælaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.
Undanþágan hafi töluverð áhrif á innlendan markað en samkvæmt Katrínu hafa verðmæti innfluttra vara á gildistíma ákvæðisins numið 94 milljónum króna en 24 milljónum króna árið 2021. Stafar það helst af innflutningi alifuglakjöts.
Vegna áhrifa á innlendan markað sé mikilvægt að fylgjast með umfangi undanþágunnar og hvaða áhrif hún hefur á samkeppnisstöðu innlendra vara.