„Það eru atriði sem standa ennþá út af hjá okkur og sem við erum að reyna í sameiningu að finna lausn á,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í samtali við mbl.is.
Fundi ríkissáttasemjara með fulltrúum úr samninganefndum BSRB og Samtaka íslenskra sveitarfélaga var slitið upp úr kl. 20 í kvöld. Ekki náðist að semja.
„Þannig í stað þess að endurtaka umræðuna var það ákveðið að við myndum taka okkur hlé og ræða við okkar baklönd og reyna að upphugsa einhverjar lausnir. Við fengum heimaverkefni fyrir morgundaginn og komum aftur til fundar þá,“ segir Sonja í samtali við mbl.is en annar fundur hefur verið boðaður klukkan 10 í fyrramálið.
„Það eru allir að teygja sig. Þannig er bara staðan. Það eru allir að reyna finna lausn á þessu.“