Sameiginlega viðbragðssveitin (Joint Expeditionary Force, JEF) sem Bretar leiða ásamt Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og Hollandi setur í æfingaskyni upp færanlega herstjórnarmiðstöð á öryggissvæðinu í Keflavík í júní.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þetta er í fyrsta skipti sem viðbragðssveitin heldur æfingu á Íslandi, en Ísland hóf þátttöku í samstarfinu í apríl 2021.
„Markmiðið með æfingunni er að gefa þátttökuríkjum tækifæri til að kynnast aðstæðum á Íslandi, setja upp færanlega herstjórnarmiðstöð, þróa viðbragðsáætlanir og æfa sviðsmyndir sem tengjast öryggisáskorunum á sviði fjölþáttaógna,“ segir í tilkynningunni.
Um 250 manns frá stjórnstöð JEF, þátttökuríkjum og öðrum vinaþjóðum taka þátt í æfingunni.
Utanríkisráðuneytið og varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar halda utan um skipulag verkefnisins af hálfu Íslands.