Þórarinn Eyfjörð, varaformaður BSRB, segir sáralítið vanta upp á til að kjarasamningar náist við Samband íslenskra sveitarfélaga í kvöld.
„Þetta er á mjög viðkvæmum stað,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Fundur BRSB og sambandsins hófst klukkan eitt í dag. Býst Þórarinn við að fundað verði eitthvað fram á kvöld.
Ef ekki næst að semja munu hátt í 2.500 manns leggja niður störf á morgun. Segir Þórarinn mikinn skaða verða náist samningar ekki í kvöld. Því leggi aðilar sig alla fram við að ná samningum í kvöld.