Gestur Dagmála í dag kallar sig sorgarnörd, í glettnislegum tón. Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir missti drenginn sinn í sjálfsvígi og hefur eftir þá þungbæru reynslu einbeitt sér að því að hjálpa fólki í sorg. Fyrir helgi gaf Bókafélagið út bókina Velkomin í Sorgarklúbbinn. Minningarsjóður um Orra hennar styrkti útgáfu bókarinnar og er hún eitt af mörgum verkefnum sem Guðrún Jóna hefur og sjóðurinn hefur komið að í þeirri viðleitni að auka fræðsluefni fyrir syrgjendur.
Þó að mörg ár séu liðin frá því að hún missti drenginn sinn er sorgin enn erfið í dag. Tíminn læknar ekki sár en hann hjálpar. Hún horfir á sorgina sem opið sár til að byrja með. Hrúður myndast, en ýmsar kveikjur rífa það upp. „Ég er hætt að gráta í búðum,“ segir hún. Í verslunum voru oft kveikjur sem minntu hana á hinn sára missi.
Guðrún Jóna var einn af stofnendum Sorgarmiðstöðvar og starfar við forvarnir gegn sjálfsvígum hjá embætti Landslæknis. Í Dagmálum dagsins ræðir hún um Sorgarklúbbinn sem enginn vill koma í en við flestum eigum þar viðkomu á lífsleiðinni.
Bókin er áhrifarík og ólík öllum öðrum bókum sem hún hefur lesið um þetta efni. Höfundur Velkomin í Sorgarklúbbinn spilar á allar tilfinningar en ekki síst húmorinn og svarar mörgum áleitnum spurningum.
Í brotinu úr þættinum ræðir Guðrún Jóna þau mikilvægu skilaboð að það er hægt að eiga gott líf þrátt fyrir þungbæran missi.
Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur áskrifendum Morgunblaðsins.
Ef þú ert að upplifa sjálfsvígshugsanir er hjálparsími Rauða krossins, 1717, opinn allan sólarhringinn. Einnig er netspjall Rauða krossins, 1717.is, opið allan sólarhringinn. Píeta-samtökin veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218. Á netspjalli á Heilsuvera.is er einnig hægt að ráðfæra sig við hjúkrunarfræðing um næstu skref. Ef þú ert í bráðri hættu hringdu í 112.