Skjálfti af stærðinni 3,4 mældist í austanverðri öskju Bárðarbungu laust eftir miðnætti.
Fyrr í kvöld mældist skjálfti af stærðinni 2,8 auk nokkurra minni skjálfta.
Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálfta af þessari stærð ekki óalgenga í Bárðarbungu.