Samninganefnd BSRB mun nýta daginn í að taka saman möguleg verkfallsbrot sem sögð eru hafa verið framin í vikunni og eftir atvikum undirbúa stefnur gegn sveitarfélögunum. Ekki hefur verið boðað til fundar í kjaradeilu BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga(SNS) í dag.
Þetta segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í samtali við mbl.is.
„Það er ekki búið að boða til nýs samningafundar. Það er ekki útlit fyrir að það verði gert í dag en þær hafa verið í sambandi við okkur samningsaðilana, en staðan er óbreytt,“ segir Sonja.
Sonja segir að um miðja viku hafi borið á verkföllum í nokkrum sveitarfélögum. Það hafi helst verið á leikskólum.
„Við erum að taka þetta saman. Við ætlum að hittast öll aðildarfélögin og fara betur yfir listann. Svo í framhaldinu förum við að undirbúa stefnur fyrir Félagsdóm ef það verður ekki látið af brotunum. Svo auðvitað verður haldið áfram með verkfallsvörslu,“ segir Sonja.
„Það var lítið um verkfallsbrot þar til á miðvikudag. Þá fundum við breytingu strax og það var í kjölfar þess að, að því er okkur skilst, SNS hafi sjálft boðað stjórnendur leikskóla á sinn fund. Þar hafi línurnar verið lagðar um hvað má og hvað má ekki, sem er þvert á það sem áður hefur verið. Þá byrjuðu þessi brot,“ segir Sonja.
Hún segir verkfallsverði BSRB hafi í heimsóknum sínum á vinnustöðum heyrt frá starfsfólki að það hafi fundist það vera að brjóta verkföll. „Þetta er mjög bagaleg staða þegar það er verið að etja fólki saman inni á vinnustöðunum. Það er mjög erfitt og þungt fyrir okkar fólk, og væntanlega fyrir þau sem starfa inni á leikskólunum,“ segir Sonja.
Hún segir fólk upplifa sig milli steins og sleggju þegar það fái svona skipanir frá sínum æðstu yfirmönnum.