Einn var með allar tölur í réttri röð í Jókernum og fær viðkomandi því tvær milljónir króna í sinn hlut.
Fjórir miðahafar fengu 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur.
Enginn var þó með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins, en einn heppinn miðahafi var með bónusvinning og hlýtur hann því tæpar 439 þúsund krónur.
Allir þeir heppnu eiga það sameiginlegt að vera í áskrift.